|
Meltingarvegurinn og geðheilsa |
|
03.Sep, 2008 kl. 00:23 |
 Bókin “Meltingarvegurinn og geðheilsa” er þýðing bókarinnar “Gut and Psychology Syndrome” eftir Dr. Natasha Campbell-McBride. Það eru án efa mikilvæg tengsl á milli geðrænna vandamála og þeirrar næringar sem við fáum. Ef við látum ranga eða ónægilega fæðu í líkama okkar getum við ekki starfað eðlilega. Í nútíma samfélagi er fæðan sem við borðum því miður oftast valin með tilliti til hentugleika og bragðs en ekki næringargildis. Það er staðreynd að við hirðum betur um bílana og húsin okkar en líkama okkar. Okkur myndi til dæmis ekki detta í hug að setja ódýrt og óhreint eldsneyti á bílinn sem fer illa með vélina, en við hugsum okkur ekki tvisvar um þegar við látum ofan í okkur óholla og skaðlega fæðu. |
|
Síðast uppfært ( 16.Okt, 2008 kl. 12:43 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
02.Sep, 2008 kl. 22:13 |
|
Dr. Campbell-McBride er læknismenntuð með sérmenntun í næringarfræði og taugasjúkdómafræði. Sonur hennar greindist með alvarlega einhverfu þriggja ára gamall og með breyttu mataræði og notkun próbíótískra bætiefna hefur hún náð gríðarlegum árangri í að meðhöndla son sinn. Í dag er hann 12 ára gamall, stendur sig vel í skólanum, er í íþróttum og á marga vini. Natasha á og rekur í dag virta læknastofu sem sérhæfir sig í meðferð á börnum með þroskaraskanir, hegðunar- og námserfiðleika, og á fullorðnum með meltingar- og ónæmissjúkdóma.
Jóhanna Mjöll Þórmarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, þýddi bókina og stofnaði fyrirtækið Matur og heilsa ehf. en sjálf á hún dóttur með námsörðugleika og hefur séð miklar framfarir hjá dóttur sinni með breyttu mataræði. |
|
Síðast uppfært ( 07.Sep, 2008 kl. 11:46 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|